Það er lítið mál okkar megin að tengja Stubb posa kerfið okkar en eins og staðan er í dag erum við aðeins tengdir við hvítu PAX posana hjá Teya og virka þeir því aðeins við kerifð okkar.
Við þurfum síðan að skoða aðrar tengingar í framtíðinni.
En það sem þarf að hafa klárt áður en við náum að tengja okkur við posana er eftirfarandi
- Til að tengja Ipad Pos lausnina þarf félagið að vera með Hvíta Pax posa frá Teya. Ef félagið er með posana sína annars staðar þurfum við að skoða það nánar, ef félögum gefst kostur á að prófa lausnina með Teya posum
- Félagið þarf að vera með innskráningu prófkúruhafa inn á Teya Buisness portal í link hér: https://portal.teya.com/
- Ef félagið er ekki með aðgang að þessum hlekk þá er hægt að senda á hjalp@teya.is og þau svara innan 45 mínútna á milli 8-16 á daginn.
- Tillaga að texta til að senda á Teya.
“ Góðan daginn,
Við (Félagið) erum að taka upp POS lausn hjá Stubb og óskum eftir því að fá aðgang að Teya Buisness portal link: https://portal.teya.com/ til þess að tengja posa okkar við þeirra kerfið.
Endilega gefa aðgang á tölvupóstinn xxxxx þannig við getum keyrt þetta af stað. - Þegar aðgangur er kominn að Teya Buisness Portal þá er ekkert mál að setja upp kerfið og tekur einungis nokkrar mínútur.