Nú höfum við lokið við að laga villuna sem kom upp í hádeginu, og kerfið er komið í gang aftur. Allir sem náðu að kaupa miða munu fá miðann sinn afhentan á ný fljótlega.
Á meðan unnið var að lagfæringum tók Knattspyrnudeild Víkings ákvörðun um að fresta sölunni tímabundið og endurhugsa skipulagið á miðasölunni.
Við bíðum því eftir nánari fyrirmælum frá Víkingi og má búast við ítarlegri yfirlýsingu frá þeim fljótlega.
Bestu kveðjur,
Stubb teymið